20. maí 2005

 

Vöktun rjúpunnar

 

Um þessar mundir standa yfir talningar vegna vöktun rjúpnastofnsins. Verkefnið er undir stjórn Ólafs K. Nielsen, fuglafræðings á Náttúrufræðistofnun Íslands, en unnið í samstarfi við náttúrustofur og áhugafólk víða um land. Meðal þess sem er gert, er að heimsækja sömu svæði á hverju vori og telja rjúpur. Fjögur slík svæði eru á umráðasvæði Náttúrustofu Vesturlands, eitt við Hundastapa á Mýrum en þrjú við sunnanverðan Breiðafjörð, þ.e. í Litla-Langadal, við Dunká og á Dagverðarnesi (1. mynd).

 

Náttúrustofa Vesturlands hefur aðstoðað Ólaf K. Nielsen við talningar við Hundastapa en sér alfarið um talningar við Dunká með aðstoð Reynis Halldórssonar úr Stykkishólmi. Svæðið milli ánna Dunkár og Skraumu hefur nú verið talið árlega frá vorinu 2001 og hefur fjöldi fugla sveiflast umtalsvert (2. mynd). Fjöldi rjúpukarra er talinn besti mælikvarðinn á þéttleika rjúpna en hann hefur verið frá 7-18 þessi fimm fyrstu ár vöktunar á þessu svæði. Athygli vekur fækkun í ár, ólíkt því sem gerst hefur víðast hvar annars staðar um landið. Þó verður að hafa í huga að þetta er aðeins lítið svæði og geta tilviljanakenndar sveiflur því haft mun meiri áhrif en á landsvísu.

1. mynd: Talningarreitir vegna vöktunar rjúpnastofnsins. (Úr Ólafur K. Nielsen, Jenný Brynjarsdóttir og Kjartan Magnússon (2004.)  Vöktun rjúpnastofnsins 1999-2003.  Fjölrit Náttúrufræðistofnunar nr. 47.)

2. mynd: Svæðið milli ánna Dunkár og Skraumu hefur nú verið talið árlega frá vorinu 2001 og hefur fjöldi fugla sveiflast umtalsvert.

 

 

3. mynd. Rjúpukarri í Sauraskógi vorið 2005 (ljósm. Róbert A. Stefánsson)