25. janúar 2006
Fyrirlestur um lífræna ræktun
Í gær var haldinn fyrirlestur um lífræna ræktun í boði Umhverfishóps Stykkishólms. Í fyrirlestrinum fjallaði Menja von Schmalensee, líffræðingur á Náttúrustofu Vesturlands, um það í hverju lífræn ræktun felst og hvaða munur er á lífrænt ræktuðum afurðum og hefðbundnum. Ýmsum spurningum var leitast við að svara, svo sem hvort lífrænt ræktuð matvara geti haft áhrif á heilsufar okkar og hvort við höfum efni á að kaupa slíkar vörur. Góð mæting var á fyrirlesturinn og sköpuðust skemmtilegar umræður að honum loknum.
