14. febrúar 2006
Háskólasetur Snæfellsness stofnaðSíðastliðinn fimmtudag var haldinn stofnfundur stjórnar Háskólaseturs Snæfellsness.
Háskólasetur Snæfellsness er fræðasetur Háskóla Íslands á Snæfellsnesi. Það er staðsett í Stykkishólmi og er fyrst og fremst rannsóknasetur með áherslu á náttúrurannsóknir á Snæfellsnesi og Breiðafirði, enda er náttúran þar með eindæmum fjölbreytt og rannsóknatækifæri óþrjótandi.
Fyrst um sinn verður um eitt stöðugildi að ræða en vonir standa til að þeim muni fjölga hratt, ekki síst með aðkomu háskólanema í framhaldsnámi í náttúrufræðum. Er hér um að ræða spennandi tækifæri til uppbyggingar á þekkingu og til að auka fjölbreytni í atvinnu og menntun á svæðinu.
Tilkoma setursins á sér nokkra forsögu en segja má að hugmyndin hafi formlega tekið að þróast eftir að starfsmenn Náttúrustofu Vesturlands fóru á fund forstöðumanns Stofnunar fræðasetra Háskóla Íslands í nóvember 2003 með tillögu um að Háskólinn kæmi á fót rannsóknasetri í náinni samvinnu við Náttúrustofuna. Fulltrúar Háskólans voru strax jákvæðir, einkum vegna þess að með þessu móti væri ekki stofnuð ný einmenningsstofnun, heldur gæti starfsmaður setursins strax gengið inn í þá starfsemi og aðstöðu sem fyrir væri á Náttúrustofu Vesturlands. Þá skipti einnig máli að ekkert annað setur Háskólans var fyrir á Vesturlandi en Háskólinn vill gjarnan þjónusta alla landsbyggðina.
Fjármagn til stofnunar setursins var tryggt með framlagi ríkisins á fjárlögum ársins 2006, en auk þess leggur Stykkishólmsbær til fræðimannaíbúð fyrir gestafræðimenn og aðstöðu í ráðhúsi Stykkishólms og Náttúrustofa Vesturlands leggur m.a. til aðstöðu á rannsóknastofum.
Í fyrstu stjórn Háskólaseturs Snæfellsness sitja sex fulltrúar, þar af eru þrír tilnefndir af Háskóla Íslands. Formaður er Rögnvaldur Ólafsson, dósent í eðlisfræði og forstöðumaður Stofnunar fræðasetra Háskóla Íslands en ásamt honum eru þeir Jörundur Svavarsson, prófessor í sjávarlíffræði og Arnþór Garðarsson, prófessor í dýrafræði, fulltrúar Háskólans. Fulltrúi Stykkishólmsbæjar er Magnús I. Bæringsson, sjávarútvegsfræðingur, en Menja von Schmalensee, líffræðingur, er fulltrúi Náttúrustofu Vesturlands. Leitað hefur verið til Héraðsnefndar Snæfellinga um að hún tilnefni sjötta fulltrúann í stjórnina.
Nú þegar hefur verið auglýst eftir forstöðumanni og verður áhugavert að fylgjast með framgangi mála en að öllum líkindum hefjast rannsóknir á vegum setursins strax í vor.
Frá stofnfundi Háskólaseturs Snæfellsness: Róbert Arnar Stefánsson, Menja von Schmalensee, Magnús I. Bæringsson,
Arnþór Garðarsson,
Jörundur Svavarsson, Davíð Sveinsson, Rögnvaldur Ólafsson, Elísabet Björgvinsdóttir,
Erla Friðriksdóttir, Dagný Þórisdóttir og Eyþór Benediktsson.