25. ágúst 2004
Þann 20. ágúst kom Símon Sturluson, hafnarverndarmaður Stykkishólmshafnar, á Náttúrustofu Vesturlands með engisprettu. Hana hafði hann fundið í flutningaskipinu Jökulfelli við uppskipun á stórum plaströrum, sem flutt voru til landsins frá Gdansk í Póllandi. Engisprettan er stór (u.þ.b. 6 cm löng) og gullfalleg. Hún er af tegundinni Great Green Bush-cricket (Tettigonia viridissima) og er á lífi í glerbúri á Náttúrustofunni. Ólíklegt verður að telja að engisprettan hefði lifað lengi hefði hún sloppið út í íslenska síðsumarið að aflokinni hitabylgjunni.
|
Náttúrustofa Vesturlands, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi, s. 438-1122, Gsm 898-6638, NMT 855-0922, Fax 438-1705, nsv@nsv.is