13. október 2004
Köttur veiddi sjaldgæfan fisk
Kettir eru þekktir af öðru en fiskveiðum, enda forðast þeir alla jafna að blotna meir en nauðsyn krefur. Kötturinn Adidas í Stykkishólmi virðist þó vera undantekning frá því. Sunnudaginn 10. október kom eigandi hans, Hermann Guðmundsson, að honum í eldhúsinu heima hjá sér þar sem hann hafði nýlokið við að éta ferskan fisk. Það eina sem eftir var af fiskinum var hausinn. Þótti Hermanni hann vera undarlegur og fór því með hann á Náttúrustofu Vesturlands, þar sem hann var greindur sem geirnef (Scomberesox saurus). Högninn Adidas hafði því gert góða ferð í fjöruna og ekki í fyrsta sinn, því hann hafði áður sést koma með fisk heim, t.d. eitt sinn spriklandi sprettfisk.
Geirnefur er langvaxinn fiskur með framteygða skolta líkt og hornfiskar og getur náð allt að 50 cm lengd. Fæðan er ljósáta og önnur sviflæg krabbadýr. Geirnefir eru úthafsfiskar sem lifa í torfum við yfirborð. Þeir eiga heimkynni í hlýjum og heittempruðum sjó. Á sumrin ganga stórar torfur norður á bóginn allt norður í Barentshaf og stundum flækist geirnefurinn til Íslandsmiða. Geirnefur er sums staðar veiddur í reknet en hvergi í miklu magni.
|
Kötturinn Adidas
|
Útbreiðsla geirnefs
|
Geirnefur
|
Náttúrustofa Vesturlands, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi, s. 438-1122, Gsm 898-6638, NMT 855-0922, Fax 438-1705, nsv@nsv.is