8. júní 2005

Fuglaskoðun Náttúrustofunnar

Síðastliðinn laugardag fór 13 manna hópur í fuglaskoðunarferð í boði Náttúrustofu Vesturlands.  Farið var í blíðskaparveðri hringinn í kringum Snæfellsnes.  Alls sáust 42 tegundir fugla, en athyglisverðast var þó að sjá skutulandarpar á Hofgarðatjörn og hvorki fleiri né færri en 11 skeiðandarsteggi á vötnunum í Staðarsveit.  Að auki sást háhyrningsvaða út af Hellnum. 

Þær tegundir sem sáust voru: Fýll, toppskarfur, álka, stuttnefja, langvía, tjaldur, sandlóa, heiðlóa (lóa), lóuþræll, tildra (dauð), hrossagaukur, spói, jaðrakan, stelkur, óðinshani, hettumáfur, rita, svartbakur, sílamáfur, hvítmáfur, kjói, kría, álft, grágæs, stokkönd, rauðhöfðaönd, skeiðönd, skúfönd, duggönd,straumönd, æðarfugl, toppönd, skutulönd, lómur, flórgoði, rjúpa, þúfutittlingur, maríuerla, steindepill, skógarþröstur, hrafn og stari.